Einkakennsla
EINKAKENNSLA
Liberis Fræðslumiðstöð ehf býður upp á einkakennslu fyrir þá sem hafa áhuga á að læra íslensku eða ensku.
Einkakennsla fer fram á einstaklingsgrundvelli, það er að segja námsmaður og kennari, einn á einn.
Kennslan getur farið fram bæði í staðbundinni kennslu eða í fjarnámi.
Verðið fyrir 40 mínútna kennslustund er 13.000 kr.
Það er ekki skylt að kaupa lágmarksfjölda kennslustunda.
Eftir að fjöldi kennslustunda hefur verið ákveðinn, er nemandinn skuldbundinn til að greiða heildarupphæðina á reikning: 0537-26-691210, kt: 6912100220.
Eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd, fær nemandinn reikning sendan í tölvupósti.
Tíðni kennslustunda, námsstig, námsefni og kennsluform eru ákveðin sameiginlega á skipulagsfundi, sem er ekki hluti af einkakennslunni sjálfri.